Psalms 108

1Ljóð. Davíðssálmur. 2Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, ég vil syngja og leika, vakna þú, sála mín! 3Vakna þú, harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann. 4Ég vil lofa þig meðal lýðanna, Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna, 5því að miskunn þín er himnum hærri, og trúfesti þín nær til skýjanna. 6Sýn þig himnum hærri, ó Guð, og dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina, 7til þess að ástvinir þínir megi frelsast. Hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr mig. 8Guð hefir sagt í helgidómi sínum: ,,Ég vil fagna, ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót-dal. 9Ég á Gíleað, ég á Manasse, og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn. 10Móab er mundlaug mín, í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég.`` 11Hver vill fara með mig í örugga borg, hver vill flytja mig til Edóm? 12Þú hefir útskúfað oss, ó Guð, og þú, Guð, fer eigi út með hersveitum vorum. 13Veit oss lið gegn fjandmönnunum, því að mannahjálp er ónýt. [ (Psalms 108:14) Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna, og hann mun troða óvini vora fótum. ]
Copyright information for Icelandic